Velkomin(n) á heimasíðu Súlunnar
21.08.2006 17:45:26 / kjartan

FC Zulu, season 1

 Jæja smá póstur um tímabilið þó það sé að sjálfsögðu löngu búið!!!

Við vorum auðvitað last minute lið og bjuggumst svosum ekkert við neinum afrekum en eftir á séð og er alveg ljóst að við hefðum getað gert miklu betur!!! 

Lið Leikir Sigur Jafnt Tap Mörk Nettó Stig
BN´96 10 7 2 1 31-:-14 17 23
HRV 10 6 0 4 28-:-21 7 18
KE 10 5 1 4 32-:-29 3 16
Dýnamó 10 3 3 4 23-:-29 -6 12
06.-apr 10 3 1 6 25-:-47 -22 10
Súlan 10 2 1 7 23-:-22 1 7


Eins og sjá má á þessari töflu endaði deildin mjög sorglega:( Ég held að enginn heilvita maður geti sagt að við höfum verið með léglegasta liðið en svona er þetta stundum.... við áttum svo miklu meira inni en stigataflan sýnir (btw við skoruðum 24 mörk en ekki 23!!!!), muniði bara eftir því þegar við vorum yfir gegn BN, KE og HRV í fyrri umferðinni og töpuðum því svoo öllu niður, og í seinni umferðinni þegar við töpuðum aftur fyrir BN og KE og misstum svo Dynamo leikinn niður í jafntefli.  En það sem stendur auðvitað upp úr hjá okkur eru leikirnir gegn erkifjendum okkar í 6.apríl en eins og okkur finnst svo gaman að rifja upp fóru þeir 6-0 og 7-2 :D:D

En jæja það þýðir ekkert að væla yfir þessu heldur bara að vinna þessa malarvinnsludollu á næsta ári!!!!;)  En talandi um næsta ár þá munum við sennilega spila undir öðrum merkjum en súlunnar þó ekkert sé ákveðið ennþá, en ef þú hefur áhuga á að spila meðð okkar glæsilega liði á næsta ári þá er bara að hafa samband við mig, óla, palla, lexa eða bara einhvern leikmann okkar.

Lokahófið okkar verður svo haldið á næstunni en það á bara eftir að koma í ljós;)

En þetta er orðið gott svo ég þakka bara fyrir sumarið og vona að þetta fari bara betur á næsta ári;)

p.s. við vorum þó alla vega með myndarlegasta  liðið!!!!!:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 23:25:24 / kjartan

Síðasti leikur!!

Síðasti leikurinn okkar á þessu tímabili verður á mrgun klukkan 8 í höllinni á móti HRV, við verðum að vinna hann til að komast upp af fokkings botninum

En eftir leikinn hvernig sem fer og hvernig sem viðrar þá endum við sísónið á því að stökkva allir í hylinn hér í Búðaránni sem verður auðvitað bara gaman :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 18:30:29 / kjartan

Leiknir 8-0 Súlan

Jámm töpuðum 8-0 í æfingaleik á móti Leikni í gær

Liðið:

                        Halli

Addi þristur, Aggi, Kjartan B, Konni

                       Óli

Páll, Bessi apríl, Kjartan E, Gummi

                     Ævar

Á bekknum var svo Einar sem kom mikið inná

Vorum 6-0 undir í hálfleik þá var skipt á markmönnum og við fengum líka einn varnarjaxl úr Leikni með okkur.

En það er alveg ljóst að þolið og samspilið er ekki nógu mikið hjá liðinu þess vegna verður æfing á morgun klukkan 8 inní grænafelli, í kvöld, föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn ewiga allir leikmenn að fara út að hlaupa eða í ræktina.  Við eigum bara einn leik eftir og verðum að vinna hann til að koma 6.apríl í neðsta sætið þar sem þeir eiga svo sannarlega heima!!!!

og já leikurinn veðrur á mánudaginn kl 20:00 að öllum líkindum í nýju höllinni og jafnframt fyrsti leikurinn sem fer fram í henni:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 23:34:42 / kjartan

Allt að gerast eða...

Síðan er allavega ekki alveg dauð!!!!

En að öðrum málum það er ýmislegt búið að gersast hjá okur Súlumönnum síðan síðast var bloggað...

LEIKNIR F. 8 - 1 SÚLAN:

við byrjuðum á því að tapa 8-1 fyrir Leikni Fáskrúðsfirði en þá var byrjunarliðið svona:

                    Ævar
                 
                   Svanur
           Kristján L    Arnór
Kjartan B                         Aggi

Maggi A      Leif      Kjartan E   Lexi
                   
                       Ellli
Inná komu svo Óli sem setti okkar gullfallega mark, Stebbi Óli, Atli Már, Kalli Fedda, Konni sem er nýkominn til okkar frá Austra Raufarhöfn, Palli, Gummi og Þórir Steinn sem setti nýtti félagsmet þegar hann var yngsti leikmaður í sögu þess þegar hann kom inn á 10 ára og 4 daga gamall!!!!!

KE 4 - 3 SÚLAN:

Næsti leikur var svo á móti KE, þar sem við vorum 10 mættir inná völlinn þegar dómarinn flautaði leikinn á en Ævar tók sprett frá íþróttahúsinu og tókst að koma inn á í tæka tíð, en byrjunarliðið var þannig að
              
                   Halli
  Aggi    Arnór     Kjartan B    Atli M

  Ævar     Elli        Kjartan E   Stebbi Óli
   
               Lexi      Óli

Inná komu svo Jenni, Maggi, Leif og Sjonni ef ég fer rétt með, þess má geta að aðeins tveir leikmenn liðsins voru eldri en 20 í þessum leik og Súlan hefur aldrei stillt upp svona sóknarsinnuðu liði áður:P En jæja staðan í hálfleik var 3-2 fyrir okkur en eins og svo oft áður töpuðum því niður og endaði leikurinn 4-3 fyrir KE, Lexi skoraði glæsilegt mark úr hornspyrnu og Elli setti hin tvö:)

FYRSTI LEIKMAÐUR TIL AÐ FARA FRÁ OKKUR:

... var Elvar Þór Ægisson sem yfirgaf okkur eftir KE leikinn og bar við að hann vildi spila í úrslitakeppninni.  Súlan hefur ákveðið að fylgja ekki fordæmi annarra og fara í fýlu þó leikmenn yfirgefi liðið enda það val þeirrra sjálfra með hvaða liði þeir spila! ( BTW Elli fór til Hattar B en það er aukaatriði).

SÚLAN 1 - 1 DYNAMO HÖFN:

Á sunnudaginn tókum við svo á móti Hornfirðingum á rennblautum Stöðvarfjarðarvelli, eins og á móti KE vantaði marga í leikmannahópinn en við létum það ekki á okkur fá og grófum upp 2 gamlar kempur sem gerðu garðinn frægan Leikni Fáskrúðsfirði á yngri árum og einn leikmann frá Hrafnkeli Freysgoða sem hefur hingað til verið þekktari fyrir aðrar íþróttagreinar en knattspyrnu:)

Byrjunarliðið:
            
                       Lexi
  Kjartan B   Guðni   Þorri    Ævar
                       Bjöggi

   Aggi        Arnór   Kjartan E  Óli
  
                       Maggi

Bekkurinn: Páll, Stebbi Óli, Styrmir "Mazzanegger" og Sjonni, allir komu inná

Fyrri hálfleikurinn var frekar slappur hjá okkar mönnum, reyndar voru Dynamo menn ekkert mikið skárri enda var erfitt að móta sig á vellinum, Guðni bjargaði glæsilega á marklínu og skekkti í leiðinni markið um nokkra sentímetra;)  Í seinni hálfleik komum við svo miklu betur stemmdir og uppskárum mark þegar Bjöggi fylgdi aukaspyrnu glæsilega eftir.  Við þetta bættu Dynamó menn í sóknina en ekkert fór fram Lexa sem lokaði markinu glæsilega, en þegar fimm mínútur voru eftir varð einn okkar manna fyrir því óláni að renna illa í bleytunni og fella þannig sóknarmann Dynamó svo þeir uppskáru víti sem þeir nýttu vel:(  Þetta urðu svo lokatölur leiksins.

Smá um hvern leikmann svona til tilbreytingar,

Lexi, varði oft glæsilega í markinu og hefur verið valinn maður leiksins :D
Óli, sem áður hafði slegið í gegn meðal Dynamo manna var stórhættulegur á miðjunni og er búinn að finna sér framtíðarstöðu sína
Bjöggi, skoraði glæsilegt mark og átti stórleik
Guðni, bjargaði glæsilega á línu og hreinsaði vel í vörninni
Þorri, var eins og klettur í vörninni eins og svo oft áður!!
Arnór, stjórnaði spilinu á miðjunni
Kjartan Ernir, fór fljótlega yfir á kantinn og átti fína spretti, nældi sér líka í eitt stykki gult :p
Ævar, var eins og Lexi búinn að spila leik fyrr um daginn, byrjaði ekki í sinni uppáhaldsstöðu en leysti hana samt vel, og tók svo góða spretti á kanntinum
Maggi, átti stórhættulegi hlaup frammi og var oft ógnandi en gríðarlega óheppinn að koma okkur ekki í 2-1
Aggi, var í samkeppni við Óla um hvor væri grófari og nældi sér í spjald:p átti fínan leik og bjargaði oft vel
Páll, kom inná kanntinn og spilaði mjög vel og hjálpaði vel til baka
Stebbi Óli, kom líka inná kanntinn og stóð sig vel, missteig sig samt illa
Sjonni, spilaði sem kantmaður og átti fína spretti
Syrmir, kom bæði á kantinn og í bakvörðinn, ruddist upp völlinn án þess að nokkur Dynamo maður gæti haggað við honum :)
Sjálfur spilaði ég svo bæði sem bakvörður og fór svo í fyrsta skipti í sumar úr vörninni og á kanntinn sem ég var bara að fíla ágætlega :D

En við vorum óheppnir að tapa þessum leik niður þó jafntefli hafi e.t.v verið sanngjörn niðurstaða

STAÐAN Í DEILDINNI:

BN bætti metið okkar og slátraði góðkunningjum okkar frá Seyðisfirði og víðar að 9-2 á gervigrasinu og KE vann HRV 4-2 sem mér finnst mikil tíðindi þannig staðan er þannig:

Lið Leikir Sigur Jafnt Tap Mörk Nettó Stig


BN´96 9 6 2 1 28-:-14 17 20

KE 9 3 1 4 24-:-27 -3 13

Dýnamó 8 3 1 2 22-:-20 2 12

HRV 8 4 0 3 20-:-20 0 12

06.-apr 9 3 1 5 23-:-39 -16 10

Súlan 9 2 1 6 24-:-20 4 7

Markatlan hjá okkur er 24-20 en ekki 23-20 eins og stendur á UÍA síðunni!!!

En ókey þetta er ekki draumastaðan og lýsir ekki í raun styrkleika liðina (ég efast um að e-r geti sagt að við séum með lélegasta liðið(!))  En það þýðir ekkert að væla svo við verðum bara að gjöra svo vel að vinna HIV í næsta leik og treysta á að Eskfirðingar taki Aprílinn, við verum með mun betri markatölu en þeir svo að það er nóg fyrir okkur að hirða 3 stigin ef KE vinnur til að komast af botninum

NÆSTI LEIKUR:

Er á móti HRV á stöddaranum, hann er settur 13.ágúst en verður þó líklega 14. eða 15, þetta er okkar síðasti leikur og við verðum bara að vinna hann, þangað til er um að gera að hafa æfingar, alla vega eina fyrir Verzló, helst bara á morgun kl.8 á Grænafell Stadium;9

En þetta er orðið alltof langt svo ég segi bara bæbæ elskurnar mínar;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 18:16:13 / kjartan

Leiknir - Súlan

Æfingaleikur á fáskrúðsfjarðarvelli klukkan 8 í kvöld, Stórveldið Súlan mætir 3.deildar liði Leiknis í æfingaleik, allir að mæta!!!!

» 13 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 12:43:54 / kjartan

KE leiknum frestað!!!

Leiknum okkar við KE hefur verið frestað eitthvað fram í vikuna! fimmtudagurinn hentar sennilega best en þetta kemur allt í ljós:)  Þangað til held ég að það sé ekki úr vegi að skella sér á eitt stykki æfingu til tilbreytingar, mánudagurinn kannski eða.... kmmentið nú um þetta ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 12:48:41 / kjartan

6.apríl 2-7 Súlan

Hellllúúúú ladies!!! Glæsilegur sigur okkar Zúlúmanna leit dagsins ljós á sunnudaginn þegar við lékum við hvurn okkar fingur í hörkuleik gegn 6.apríl.  Leikurinn var spilaður á Stöddaranum þar sem Aprílsmenn fengu ekkileyfi til að spila á Seyðisfirði.  Bæði lið voru með skemmtilegar yfir lysingar fyrir leikinn og þvertóku Aprílsmenn fyrir að sagan úr fyrri leiknum myndi endurtaka sig en eins og elstu menn muna þá lauk honum með 6-0 sigri Súlunnar!!!
Byrjunarlið Súlunnar var þannig skipað í þessum leik:
                                 Halli
            Maggi A  Svanur   Kjartan B   Ævar
                                  Arnór
             Aggi        Oddur    Elvar     Páll
                                  Gummi
Á bekknum voru svo Lexi og Stefán Ingi sem báðir töfuðst aðeins, Bjössi, Maggi Palla, Óli Rauði, Sjonni, Stebbi Óli og Kjartan Ernir og komu allir inná :).
 6.apríl komst yfir snemma í leiknum en ég man bara ekki hver markaskorarinn var (þið kommentið bara;)).  Elvar jafnaði svo fyrir okkur með góðu skoti en 6.aprílsmenn komust svo aftur yfir þegar Bjössi Ben smell hitti ´ann og inn!  Stuttu síðar fékk 6.apríl svo vafasama vítaspyrnu en Halli varði glæsilega í markinu.
 Eftir vítið urðu kaflaskil í leiknum, Súlumenn tók öll völd og Oddur, Lexi, Maggi Palla, Stefán Ingi og Maggi Andrésson settu ´ann allir og Maggi A. meira að segja 2svar ;)
 
  Þetta var í raun glæsilegur leikur hjá okkur, allt liðið stóð sig vel og maður getur ekki annað en verið stoltur af því, næsta verkefni eru svo Tuðsrusparkarar frá Eskifirði sem hafa ekki verið að gera góða hluti í síðustu leikjum.  Við vorum mjög óheppnir en að sama skapi klaufar að tapa fyrir þeim fyrr í sumar og það kemur ekki fyrir aftur!!!   Fyrir leikinn eru hugaðar t æfingar, báðar inní Grænafelli sú fyrri klukkan 8 í kvöld en sú seinni á fimmtudagnn klukkan 8, nú er um að gera að fjölmenna;)  En annars segi égbara bleh og kveð að sinni;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 12:17:18 / Lexi

ÆFING

ÆFING Í DAG KLUKKAN HÁLF NÍU UPPÍ GRÆNAFELLI ALLIR AÐ MÆTA!!!! ÞETTA ER ÆFING OG FUNDUR FYRIR BN LEIKINN

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 20:32:01 / Lexi

Æfing

JÆJA strákar.. það er æfing uppí grænafelli klukkan 9 á sunnudaginn og það verða helst allir að mæta.. svo er leikur gegn HRV á stöðvarfirði klukkan 8 á mánudaginn

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 23:59:46 / kjartan

Slæmt tap gegn Dynamo

Góðan daginn,  ætli einhver verði ekki að rífa þessu síðu upp og auðvitað er þessi einhver ég:D... hehe jæja síðasti leikur var í slappari lagi hjá okkur 3-1 tap gegn Dynamo Höfn á Hornafirði í 30 m/s að minsta kosti!!!!!! 
 Það hefur ýmislegt verið sagt um leikinn en skýringin er bara sú að við vorum jafn lélegir og Brazzarnir á HM og alveg ljóst að við vinnum ekki með svona spilamennsku.
  En jæja við lögðum mjög ferskir á stað frá Reyðarfirði um hádegi og vorum komnir á Höfn kl 4, e-ð gekk nú illa að fá búningsaðstöðu þannig við urðum bara að klæða okkur í búiningana útí blíðunni á Hornafirði áhorfendum til mikillar skemmtunar :D  En jæja byrjunarliðið okkar var þannig:

                        Maggi
    Róbert   Kristján  Svanur    Kjartan
                         Bjössi
     Lexi      Elvar       Tommi    Páll
                         Ævar (c)

 Á bekknum voru svo Oddur sem var e-ð meiddur, Halldór, Sjonni, Agnar og Óli, og komu allir inná.  Ævar gerði afdrifarík mistök strax á upphafsandtökum leiksins þegar hann tapaði dómarauppkastinu og urðum við þess vegna að spila á móti vindi í fyrri hálfleik.  Það var samt engan veginn hægt og ef maður skaut upp í loftið fór boltinn afturábak, Hornfirðingarnir pressuðu stíft og náðu að setja tvö mörk, og staðan því 2-0 fyrir þeimí hálfleik.
  í seinni hálfleik spiluðum við svo með vindi en þá hafði hann lægt eitthvað smá.  Við spiluðum uppá að pressa en það gekk samt ekkert of vel.  Um miðjan hálfleikinn fengu Dynamo menn vægast sagt vafasama vítaspyrnu þegar Maggi markmaðurinn okkar teygði sig í boltann, en sóknarmaður Dynamo lét sig falla með tilþrifum sem jafnvel Cristiano Ronaldo hefði verið stolltur af.  Dynamo-menn skoruðu svo úr spyrnunni og þá varð allt brjálað, leikurinn varð vægast sagt grófur og fagurfræðin fékk ekki alveg aðnjóta sín, Hornfirðingarnir fengu svo aðra vítaspyrnu sem að þessu sinni var reyndar réttilega dæmd, markmaðurinn þeirra tók spyrnuna en hún var e-r sú slakasta sem sést hefur. beinn jarðarbolti á magga:)..hehe leikurinn hélt svo áfram að vera grófur en við náðum að minnka muninn þegar Tommi komst einn í gegn og potaði boltanum í netið en á sama tíma braut títtnendur markmaður Dynamo illa á honum svo hann þurfti að fara útaf og er óvíst með þátttöku hans í næstu leikjum:(  Leiknum lauk svo skömmu síðar, eftir nokkur brot og fleiri þurftu að fara slasaðir útaf m.a. undirritaður.  Maður leiksins var svo að mínu mati Tommi sem fórnaði löppinni fyrir liðið :P

  Húsvörðurinn í Mánagarði var í fríi svo við gátum ekki fengið sturtuaðstöðu þar og sundlaugin var lokuð þannig ljóst var að við urðum að keyra súrir heim, menn voru nú misánægðir með þetta enda heitir eftir leikinn!!!  Eftir þetta skildist hópurinn svo að en við sem vorum með Palla í bíl fórum og fengum okkur að éta á Kaffihorninu held ég... hehje það var vægast sagt skrautlegt og ég fékk að bíða í ´tjjjjaaaa góða stund eftir borgaranum mínum, en í biðtímanum jélt maður þó stuðinu í hópnum og bjargaði deginum með gífurlegumgullhömrum og tilþrifum ;):D  En ok við komum svo súrir, sveittir, stirðir en samt sætir heim á Reyðarfjörð e-n tímann um kvöldið og fórum í bólið;)

Eeennn eftir leikinn vantar búninga númer 2,4,6 og 8 í settið, endilega komið þeim til mín eða segið mér hverjir voru í viðkomandi búning svo við getum haft upp á viðkomandi og sent Gullkálfinn sjálfan á hann!  En það er leiðinlegt að vera að týna þessum búningum svo reynum að skila þeim!!!!!

Jæja svo er eitt í viðbót, næsti leikur er á móti álversstrákunum í HRV á mánudaginn á stöddaranum en þetta er samt þeirra heimaleikur, við bókstaflega verðum að vinna þennan leik ef við ætlum að vera e-ð af alvöru með í toppbaráttunni:)

En þetta er komið gott marr, nú verðiði að komenta... En já undanúrslitin á HM fóru illa en Þjóðverjarnir taka samt 3.sætið:D ekki alveg sáttur með liðin í úrslitunum en neyðist til að segja Forza Italia!!!!

Kjartan Bragi;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 19:40:56 / kjartan

Djö,óheppnir maður gegn Eskfirðingunum

Hæhæ!!!!

Já á miðvikudaginn töpuðum við okkar öðrum leik í deildinni gegn KE frá Eskifirði en leikurinn var spilaður á stöddaranum, helvíti tæpt maður aftur töpum við leik þar sem við vorum betri aðilinn þó það væri kannski ekki eins áberandi og gegn Boltafélaginu og í 3.árið í röð er ég í liði sem tapar niður unnum leik gegn Eskfirðingunum (hin tvö árin með Gerpi).  Það er alveg ljóst að við verðum að fara hrista af okkur KE-grýluna eins og handboltalandsliðið gerði við Svía um daginn:D...

  En ókey aftur að leiknum byrjunarliðið var svona:

                                Ævar

        Leif      Kjartan        Þorri     Stebbi

                               Viggi

       Lexi        Elvar        Arnór        Tommi

                              Oddur

Leikurinn gekk þannig að við vorum betri í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur miklu fleiri færi en KE menn skoruðu samt fyrsta markið undir lok hálfleiksins.  Eins og á móti BN og 6.apríl komum við svo miklu sprækari tilleiks í seinni hálfleik og jöfnuðum um hann miðjan þegar Oddur fyrirliði setti hann í fyrsta skipi í sumar, Oddur var svo aftur á skotskónum og skoraði aftur á 80 mín.  Í millitíðinn var samt mark ranglega dæmt af þegar Lexi kom boltanum inn fyrir línuna.  en svo kemur slæmi kaflinn og þeir sem fíla ekki sögur sem enda illa skulu ekki lesa meira:P  KE hrökk í gang, þvímiður:S, og skoraði tvö mörk og þannig endaði leikurinn, Já há frekar dapur endir og leiðinlegt að tapa maður!!!  Verst að við gleymdum að redda spjöldum fyrir dómarann en annars hefðu nokkur fengið að fjúka og þá held ég að leikurinn hefði farið öðruvísi;) 

En maður leiksins að mínu mati var Oddur sem var sprækur í sókninni. Á sunnudaginn troðum við svo upp sem skemmtikraftar á Humarhátíðinni þegar við spilum við Dynamo-menn en leikurinn er klukkan 5 á Mánavelli sem er þarna inn í sveit hjá þeim, Endilega látið mig nú vita ef þið ætlið að koma með, þið vitið símann kallar;)

Hehe já ogbæ the vei Þýskaland vann Argentínu í dag, óléólé óle´!!!!!!!!

Tilvonandi heimsmeistarar, ég er að segja ykkur það:D:D:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 23:59:13 / kjartan

6.apríl rasskletur af stórskotaliði Súlunnar;D

Hvað getur maður sagt drengir eftir svona rosalegan leik, dregga dregga ég er orðlaus, glæsileg spilamennska, glæsilgt lið og auðvitað almennt mjög myndarlegt:D  En alla vega það var ekki leiðinlegt að vakna í morgun daginn eftir 6 -0 rótburstun með öllu tilheyrandi á 6.apríl, hehe reyndar hef ég fregnir af því að sumir 6.aprílsmenn hafi bara lagst í veikindieftir þetta:)  það er alveg dagsljóst að við erummeð gríðar gott lið og setjum stefnuna klárlega á að komastí úrslitakepnina í sumar.  Ég nenni nú ekki að blogga um leikinn núna en það væri nú líka ekki ómyndarlegt ef e-r annar myndi geri e-ð á þessari gífurlega fallegu síðu.  En ok skelli samt byrjunarliðinumeð en það var svona:

                      Ævar

KjartanB Þorri Svanur StebbiI

                  Kristján L.

Lexi         Leif   Elvar    Oddur

                   Kjartan E

Á bekknum voru svo: Óli, Arnór, Aggi, Sjonni, Stebbi Óli, Halldór, Tommi og Sindri sem var reyndar enn meiddur og spilaði ekki en allir aðrirkomu inn á,shit égheld að ég séað gleymae-m þið verðið þá bara að leiðréttamig en ekki lemja meig:P  En OK BÆ nú er komið að máli málanna Æfing inn í Grænafelli, á morgun þriðjudag, klukkan 20:00 að staðartíma.  Muna að mæta með pening allir sem hafaekki borgað:klikk:  En okey svohitt aðal málið Leikur gegn KE á miðvikudaginn klukkan 20:00 á Stöðvarfirð. KE eru í 2.sæti semstendur með 4stig en við erum 3.með 3stig, það er alveg klárt að við þurfum að hirða öll stigin úr þessum leik!!!:haha:

Enoknenni ekki neinu og komið meðð eitthvað meira hingað hinn drengir og bæbæ


» 22 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 23:50:52 / kjartan

2 - 1 tap gegn BN :S

Jæja sælir Súlumenn og aðrir gestir, við hófum þáttöku okkar í malarvinnslubikarnum áðan með 2-1 tapi á móti BN, en byrjunarliðið var svona
                    Ævar
     Leif   Kjartan   Þorri  Stebbi
                     Bjössi
     Oddur  Marri   Elvar   Lexi
                     Maggi

Á bekknum voru svo Palli, Óli rauði, Aggi, Atli Már, Stebbi Óli, Halldór, Arnór, Sjonni, Sindri og eflaust einhverjir fleiri sem maður er að gleyma:P og komu allir inná nema Sindri sem var meiddur.  Jæja OK ég verð nú bara að segja að ég er sáttur við leikinn hjá okkur enda vorum við klárlega betra liðið og hefðum átt að skora mun fleiri mörk, en gangur leiksins var þannig að í fyrri hálfleik var mikið um þæfingar hjá liðunum og þau voru frekar jöfn, BN fékk nokkrar aukaspyrnur á hættulegum stöðum en klúðruðum þeim öllum, svo undir endan átti Elli alveg stórglæsilega aukaspyrnu fyrir okkur sem fór í slánna og Oddur var hársbreidd frá því að koma honum inn þegar hann fylgdi eftir.
Í seinni hálfleik komum við svo gríðar vel stemmdir inn í leikinn og sköpuðum okkur fullt af færum og á endanum kom Elvar boltanum loksins í netið:D.  Eftir markið var jafnræði með liðunum en við vorum þó frekar hættulegri og hefðum átt að bæta fleirum við en um miðjan hálfleikinn gerðum við mistök í vörninni sem BN menn nýtu sérog staðan varð 1 - 1 nokkuð gegn gangi leiksins.  Síðan settu nobbararnir eitthvað annað skíta mark og þannig hélst staðan til leiksloka.  leikurinn var grófur á köflum og undir endann fékk sóknarmaður BN sittt annað gula spjald eftir fólskulega tælklingu og var rekinn útaf við mikinn fögnuð áhorfenda:D það dugði þó ekki til og BN vann 2 - 1 frekar ósanngjörn úrslit en svo er boltinn, stundum vinnur slakara liðið.
  En við getum þó litið á björtu hliðarnar og framtíðin er klárlega mjög björt hjá þessu gríðar efnilega liði, flestir leikmenn okkar eru undir 20 og margir leikmenn höfðu ekki hists fyrir leikinn og liðið okkar er 10 daga gamalt en BN´96 fagnar einmitt 10 ára afmæli sínu á þessu ári :)
  En já næsti leikur er á móti 6. apríl á sunnudaginn klukkan 8 á stöddaranum.  6. apríl vann HRV 5-4 í síðasta leik sínum á Grænafellsvelli en við setjum stefnuna að sjálfsögðu á að hirða öll stigin:D
  Svo er spurning hvenar og hvar á að halda næstu æfingu endilega kommentið um það og takið svo þátt í könnuninni um mann leiksins:P

  later players ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 22:41:54 / kjartan

Velkomin á síðu Súlunnar !!

Súlan!

Já gott fólk, Súlan er dottin í gírinn aftur, við erum farnir af stað með lið í utandeild karla á austurlandi. Liðið er þétt setið en ef þig langar að spila leik með þeim bestu er bara málið að hafa samband við okkur ! :)

Næsti leikur :

Miðvikudaginn 21. júní árið 2006 verður háður fyrsti leikur Súlunnar í langan tíma. Leikurinn verður kl 20:00 á stöðvafjarðarvelli gegn Bn {Boltadæmi á norðfyrði held ég) Já þetta er spennandi leikur og við hvetjum alla sem sjá sér fært um að mæta , um að koma og stiðja súluna.

Þarnæsti leikur :

Ég er nú ekki með það á hreinu hvar sá leikur verður en hann verður næsta sunnudag þann 25. júní gegn 06 apríl, og verður sá leikur mjög spennandi, fleiri upplýsingar um þennan leik koma síðar.

Stafsetningavillur eru hér með öllu afsakaðar þar sem eg nenni ekkert að fara yfir þetta.

-  Stjórn Súlunnar

» 4 hafa sagt sína skoðun